Psalms 82

1Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna: 2,,Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela] 3Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum, 4bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra.`` 5Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða. 6Ég hefi sagt: ,,Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta, 7en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum.`` 8Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.
Copyright information for Icelandic